Auglýsing á breytingu á deiliskipulagi Hvamms og Hvammsvíkur, Kjósarhreppi
Kjósarhreppur auglýsir skv. 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breyting á deiliskipulagi Hvamms og Hvammsvíkur, Kjósarhreppi
Deiliskipulagslýsingu má finna hér:
Greinargerð
Yfirlitsuppdráttur
Séruppdráttur
Samþykkt var í sveitarstjórn Kjósarhrepps 10. mars 2020, að auglýsa deiliskipulagstillöguna, deiliskipulaginu: “Hvammur og Hvammsvík”, sem samþykkt var 28. ágúst 2000.
Breytingasvæðið nær yfir um 2,8 ha svæði í landi Hvammsvíkur í Hvalfirði. Fyrirhugað er að byggja heitar sjóbaðslaugar og tilheyrandi aðstöðu fyrir gesti baðanna, svo sem búningsaðstöðu fyrir allt að 70 manns, veitingasölu og bílastæði fyrir um 50 bíla og 2-3 hópferðabíla.
Skipulagslýsing vegna breytingarinnar hefur hlotið afgreiðslu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis í anddyri hreppsskrifstofu Kjósarhrepps í Ásgarði frá og með 13. mars 2020 til 30. apríl 2020. Tillögurnar verða jafnframt birtar á heimasíðu Kjósarhrepps, kjos.is.
Athugasemdir eða ábendingar vegna deiliskipulagstillögunnar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 30. apríl 2020. Póstlagðar athugasemdir berist á skrifstofu Kjósarhrepps að Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@kjos.is
Kjósarhreppur 11.03 2020
Sigurður H. Ólafsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi Kjósarhrepps