Grunn- og leikskóli
Flest börn úr Kjósinni fara í Klébergsskóla á Kjalarnesi.
Klébergsskóli er elsti starfandi grunnskóli í Reykjavík og var elsta bygging skólans tekin í notkun 19. október 1929. Það húsnæði er enn í notkun. Skólinn er staðsettur rétt ofan við Kléberg á Kjalarnesi. Nemendur sem sækja skólann koma úr Kjalarnesi og Kjósarhreppi og þjónar Klébergsskóli því tveimur sveitarfélögum, Reykjavíkurborg og Kjósarhreppi. Skólabílar aka þeim nemendum í skólann sem búa utan Grundarhverfis, hvort sem það er á Kjalarnesi eða í Kjósarhreppi.
Með samningi ÍTR og Menntasviðs Reykjavíkur færðist starfsemi ÍTR á Kjalarnesi undir Klébergsskóla. Þar er um að ræða Íþróttamiðstöðina á Klébergi og Klébergslaug, Frístundaheimilið Kátakot og Félagsmiðstöðina Flógyn.
Leikskólinn Berg kom einnig undir hatt Klébergsskóla þ.e. stjórnun hans þann 1. september 2016.
Í Klébergsskóla er starfræktur tónlistarskóli, Tónlistarskólinn á Klébergi og sækja tónlistarnemendur námið á skólatíma aðallega.
Símar:
Klébergsskóli skrifstofa. Sími 411 7170
Frístundaheimilið Kátakot. Sími 411 7172 (á skrifstofutíma) og farsími: 664 8270
Leikskólinn Berg. Sími 411 7171
Félagsmiðstöðin Flógyn. Sími 411 7173
Íþróttamiðstöðin á Klébergi og Klébergslaug. Sími 411 7175
Netfang: klebergsskoli@rvkskolar.is
Heimilisfang: Kollagrund 2 - 6