Sveitarstjórn
Kjósarhreppur
Árið 2015, 10. desember, kom hreppsnefnd Kjósarhrepps saman í Ásgarði kl. 13:00. Eftirtaldir hreppsnefndarmenn eru viðstaddir: Guðmundur Davíðssson(GD), Guðný G Ívarsdóttir(GGÍ), Sigríður K Árnadóttir(SKÁ), Sigurður Ásgeirsson(SÁ) og Þórarinn Jónsson(ÞJ).
Mál sem tekin voru fyrir:
1. Menn frá Þríkó koma á fundinn til að kynna “Járnmanninn í Kjósinn” eða „Kjósarmóra“ í ágúst 2016. Hreppsnefndarmenn tóku vel í hugmyndina en reiknað er með um 2-400 keppendum, inn- og erlendum.
2. Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 9. desember. Byggingarmál Afgreiðsla: Fundargerðin samþykkt.
3. Seinni umræða um fjárhagsáætlun Kjósarhrepps fyrir árið 2016.
Afgreiðsla: Samþykkt er að útsvarsprósentan verði óbreytt eða samtals 13,73%. Fasteignaálagningin verði óbreytt frá fyrra ári. A-stofn, 0,5% af fasteignamati, B-stofn, 1.32% af fasteignamati og C-stofn, 0.5% af fasteignamati.
Rotþróargjald verði óbreytt eða kr. 9500.- Breyting verður á útreikningi og álagningu vegna sorphreinsunar árið 2016.Grunngjald verður kr. 3000.- Sumarhús kr. 9000.- Tunnur 240l kr. 22.000.- Tunnur 360l kr. 36.000.- Ker 660l kr. 36.000.- Án tunnu kr. 15.000.- Rekstur kr. 15.000.-
Heimgreiðslur verði áfram kr. 40.000.- p. mánuð. Ferðastyrkur framhaldsskólanemenda verði kr. 35.000.- hver önn. Frístundastyrkur verður kr. 50.000.- á ári fyrir aldurshópinn 6-16 ára, börn í grunnskóla. Ferðastyrkur til grunnskólanema-efsta stig í félagsmiðstöð á Kjalarnesi kr. 35.000.- hver önn en grunnskólanema-miðstig í félagsmiðstöðina á Kjalarnesi kr. 10.000.- hver önn.
Gjalddagar fasteignagjalda verða 5 ( 1. mars, 1. maí, 1. júlí, 1. september, 1. nóvember) og lágmarksupphæðin kr. 30.000
Afsláttur af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega. Viðmiðun við lækkun fasteignaskatta munu hækka um 10%.
Afsláttur af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega.
a. Ef um er að ræða einstaklinga:
- með brúttótekjur undir 3.179.000kr. getur niðurfelling orðið 100%
- með brúttótekjur milli 3.179.001 – 3.640.000kr. getur niðurfelling orðið 75%
- með brúttótekjur milli 3.640.001 – 4.130.000 kr. getur niðurfelling orðið 50%
- með brúttótekjur milli 4.130.001 – 4.620.000 kr. getur niðurfelling orðið 25%
b. Ef um hjón er að ræða:
- með brúttótekjur undir 4.449.000 kr. getur niðurfelling orðið 100%
- með brúttótekjur milli 4.449.001 -5.084.000 kr. getur niðurfelling orðið 75%
- með brúttótekjur milli 5.084.001 - 5.750.000 kr. getur niðurfelling orðið 50%
- með brúttótekjur milli 5.750.001 – 6.433.000 kr. getur niðurfelling orðið 25%
Hreppsnefnd samþykkir fjárhagsáætlun vegna ársins 2016.
4. Seinni umræða um fjárhagsáætlun vegna áranna 2017, 2018, og 2019.
Afgreiðsla: Hreppsnefnd samþykkir fjárhagsáætlun ársins 2016.
5. Kjósarveitur sækja um framkvæmdaleyfi vegna lagningu hitaveitu um sveitarfélagið.
Afgreiðsla: Hreppsnefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið að undangenginni afgreiðslu Skipulagsstofnunar á erindi varðandi málið sem liggur þar fyrir.
6. Önnur mál
7. Mál til kynningar
Fundi slitið kl 16:00 GGÍ