Sveitarstjórn
Ár 2010, 28. desember er fundur í hreppsnefnd Kjósarhrepps, haldinn í Ásgarði kl. 13:00
Eftirtaldir hreppsnefndarmenn eru mættir: Guðmundur Davíðsson, Sigurbjörn Hjaltason, Guðný G Ívarsdóttir, Rebekka Kristjánsdóttir og Þórarinn Jónsson
1. Fundargerð síðasta fundar
Afgreiðsla: Samþykkt
2. Fjárhagsáætlun Kjósarhrepps fyrir árið 2010, seinni umræða
Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða 7.5m.kr
Rekstrarniðurstaða með fjármagnsliðum 12.26m.kr.
Rekstrarniðurstaða að teknu tilliti til eignasjóðs 3.13m.kr
Afgreiðsla: Samþykkt
3. Fjárstuðningur
Gerð er tillaga að styrkja Rauða Krossinn um kr. 75.000.-
Mæðrastyrksnefnd um kr. 75.000.-
Stígamót um kr.75.000.-
Samþykkt
4. Erindi kom til Kjósarhrepps frá Ólafi Engilbertssyni um stofnun Átthagastofu Kjósarhrepps eða Kjósarstofu í sveitarfélaginu. Megin hugmyndin með verkefninu væri að aðstoða við nýsköpun og efla samstarfsmöguleika aðila innan sveitarinnar, skipulagningu viðburða og fleira.
Afgreiðsla: Hreppsnefnd tekur jákvætt í hugmyndina og óskar eftir að fá frekari kynningu á henni, en mun síðan vísa málinu í framhaldi til Atvinnumálanefndar
5. Önnur mál
a. Bréf frá Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis um fyrirhugaðar gjaldskrárbreytingar fyrir árið 2011
Afgreiðsla: Gjaldskrábreytingin samþykkt