Skipulags- og byggingarnefnd
Skipulags- og byggingarnefnd Kjósarhrepps
Fundur nr. 85
Miðvikudaginn 10. júní 2015 var haldinn fundur í Skipulags- og byggingarnefnd Kjósarhrepps. Fundurinn var haldinn í Ásgarðsskóla kl 17:30. Viðstaddir voru: G.Oddur Víðisson, Maríanna H. Helgadóttir og Gunnar Leó Helgason og skipulags- og byggingarfulltrúi Jón Eiríkur Guðmundsson. Guðný Ívarsdóttir ritaði fundargerð.
Eftirfarandi erindi voru tekin fyrir á fundinum:
Byggingarmál:
- Helgi Már Hreiðarsson kt. 091252-3259 Hryggjarseli 17 109 Reykjavík sækir um leyfi til að stækka sumarhús sitt á lóð nr. 2 við Stampa í landi Háls. Stækkun hússins er á tveimur hæðum, steyptur kjallari og efri hæð úr timbri og nemur 99 m2.
Hönnun: Emil Þór Guðmundsson kt. 280456-2409.
Afgreiðslugjald: 9.500,-
Afgreiðsla: Frestað
- Gísli G. Þorkellsson kt. 250941-2699 Elliðavöllum 18 230 Reykjanesbæ óskar eftir leyfi til að byggja 50,6 m2 sumarhús á lóð sinni nr. 1 við Ennisbraut í landi Háls lnr. 126095. Húsið er úr timbri og er á steyptum stöplum.
Afgreiðslugjald: 9.500,-
Afgreiðsla: Samþykkt með fyrirvara um undirritaða aðaluppdrætti.
- Síminn hf. Kt. 460207-0880 Ármúla 25 105 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja 15 m hátt stagað timburmastur við fjárhúshlöðuna á Þúfu. Samþykki landeiganda liggur fyrir.
Afgreiðslugjald: 9.500,-
Afgreiðsla: Frestað. Umsækjandi geri betur grein fyrir áformum á uppdrætti.
- Rarik ohf. Kt. 520269-2669 Dverghöfða 2 110 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja Rofastöð í landi Eyja 1. Byggingin er smáhýsi 8,4 m2 úr stáli og verður staðsett við afleggjarann að Stillu í nágrenni Eyjatjarnar. Ekki hefur verið stofnuð lóð fyrir bygginguna.
Afgreiðslugjald: 9.500,-
Afgreiðsla: Samþykkt með fyrirvara um að lóð verði stofnuð.
- Yrki arkitektar leggja fram fyrirspurn fyrir hönd eiganda um hvort leyft yrði að stækka frístundahúsið nr. 7A við Árbraut í landi Grjóteyrar.Stækkunin nemur 9,4 m2 og tekur til alrýmis sem að færist út um það bil. 1 m til norðausturs.
Afgreiðsla: Neikvætt tekið í fyrirspurnina.
Skipulagsmál:
Fleiri mál lágu ekki fyrir og var fundi slitið kl 18:00 .
Undirskrift fundarmanna:
G. Oddur Víðisson Jón Eiríkur Guðmundsson
________________________________ ______________________________
Maríanna H. Helgadóttir Gunnar Leó Helgason
______________________________ _________________________________