Notendaráð fatlaðs fólks
Dagskrá:
1. Þjónusta sveitarfélaga 2020 - Gallup - 202101011
Skýrsla um þjónustu Mosfellsbæjar á árinu 2020 lögð fram til kynningar.
Niðurstaða
Þjónustukönnun sveitarfélaga 2020 kynnt fyrir notendaráði.
2. Greiðslur vegna setu í notendaráði - 202102078
Rætt um hugmynd nefndarmanns um beiðni um greiðslur vegna setu í ráðinu.
Til máls tók(u):Sveinbjörn Benedikt Eggertsson og Sigurður Guðmundur Tómasson.
Niðurstaða
Tekið til umfjöllunar.
3. Sáttmáli sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks - 202102077
Ítrekað mikilvægi á lögfestingu sáttmála sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Niðurstaða
Notendaráð fatlaðs fólks hvetur bæjarráð til að beita sér fyrir lögfestingu á sáttmála sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.