Markaðs, atvinnu- og menningarmálanefnd
Markaðs, atvinnu- og ferðamálanefnd, fundur nr. 23
Dagsetning 06. febrúar, kl. 16:30 í Ásgarði.
Mætt voru: Helga Hermannsdóttir formaður, Sigurbjörg Ólafsdóttir , Þórarinn Jónsson boðaði forföll og Guðný G Ívarsdóttir sem ritaði fundargerð.
Helga Hermannsdóttir formaður setti fundinn.
Mál sem tekin voru fyrir:
1. Kjósarkortið. Ákveðið að panta fund með Loftmyndum og fara yfir þær lagfæringar á kortinu sem bent hefur verið á og síðan fari kortið í prentun.
2. Bókasafnið. Næst opið 15. febrúar og þá verða þá þær stöllur Guðbjörg R Jóhannesdóttir og félagar í verkefninu „Landslag og þátttaka“ í Kjósarhreppi til viðtals.
3. Farið var yfir þau tilboð sem hafa borist í Félagsgarð
4. Næsti fundur verður 6. mars.
Fundi slitið kl 17:30 GGÍ