Fræðslu- og menningarmálanefnd
Menningar og fræðslunefnd 08.09.2010. Kl 20.00 í Ásgarði.
Mættar á fundinn : Rebekka, Rósa og Sigurbjörg.
1. Fundurinn hefur ákveðið að hittast þriðjudag í annari viku hvers mánaðar kl. 20.00
2. Rætt um akstur barna í frístundastarf ÍTR. Fundurinn saþykkti að fela sveitarstjórn að leita tilboða í akstur, annarsvegar eitt kvöld í viku og hinsvegar tvö kvöld í viku.
3. Rætt um hvort eigi að greiða frístundastyrki til leikskólabarna til jafns við grunnskólabörn. Nefndin hvetur sveitarstjórn til að styrkja leikskólabörn til frístunda til jafns við grunnskólabörn. Ef sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar teljum við rétt að það verði kynnt foreldrum leikskólabarnanna.
Næsti fundur verður þriðjudaginn 12 október.
Fleira ekki bókað, fundi slitið
Sigurbjörg Ólafsdóttir ritari