Upplestur í Ásgarði
Upplestur verður í Ásgarði þriðjudagskvöldið 13. desember kl 20:00 og verður lesið upp úr barna- og unglingabókum. Þeir sem koma og lesa upp úr bókum sínum eru þeir Gunnar Helgason með bók sína „Pabbi prófessor“ og Ævar Þór Benediktsson (Ævar vísindamaður) með sína bók “Þín eigin hrollvekja“
Börn og unglingar eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka foreldrana með.
Heldri íbúum hreppsins er boðið í hádegisverð í Ásgarði á miðvikudaginn 14. desember kl 12:00.
Um kvöldið verður aftur upplestur úr bókum en Þá koma og lesa upp úr bókum sínum, Óskar Magnússon með bók sína „Verjandinn“ og Andri Snær Magnason með sína bók „Sofðu ást mín“ Vigdís Grímsdóttir boðaði forföll.
Skötuveislan verður síðan í Félagsgarði á Þorláksmessu kl 13:00 og kostar á mann kr. 1.500.-