Tilkynning frá kjörstjórn Kjósarhrepps.
22.05.2018
Deila frétt:
Auglýsing um kjörstað og aðsetur kjörstjórnar.
Kjörstaður vegna sveitarstjórnarkosningar í Kjósarhreppi, sem fram fara þann 26. maí n.k., verður í Ásgarði og stendur kjörfundur frá kl. 12:00-20:00.
Aðsetur kjörstjórnar verður á sama stað.
Í Kjósarhreppi eru 181 á kjörskrá.
Kvenfélag Kjósarhrepps mun sjá um kaffiveitingar frá kl 14:00-17:00.
Talning atkvæða fer fram í Félagsgarði og hefst kl 21:00
Kjós 22. maí 2018
Kjörstjórn Kjósarhrepps
Ólafur Helgi Ólafsson formaður
UnnurSigfúsdóttir
Karl M Kristjánsson