Svavar Knútur á Hjalla
07.11.2024
Deila frétt:
Svavar Knútur heimsækir Suðvesturhornið föstudagskvöldið 22. Nóvember næstkomandi og heldur tónleika í hlöðunni á Hjalla í Kjós. Tónleikarnir verða, að hætti Svavars Knúts, stútfullir af sögum, söngvum og gleði auk þess sem skammdeginu fagnað með virktum. Svavar Knútur fagnar þessa dagana útgáfu tvöföldu vínylplötunnar Ahoy! Ásamt geisladiskinum Ahoy! Side B sem komu út i vor.
Miðaverð er litlar 3.500 kr. en 4.000 í hurðinni. Miðasalan er hafin á Tix.is. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Hlakka til að sjá ykkur. Krakkar eru velkomnir og ókeypis fyrir þau.