Staðan á hitaveitunni í september lok
Lagning hitaveitunnar geysist áfram.
Búið er að dreifa rörum niður að gatnamótum Hvalfjarðarvegar við Fell og verið að dreifa neðan Hvalfjarðarvegar að Harðbala og Holti.
Stofnlögn komin í jörð við Blönduholt.
Frístundasvæðin í kringum Meðalfellsvatn klárast eitt af öðru.
Eyjafelli lokið. Árbraut og Ósbraut í lokafrágangi. Vinna hafin við Flekkudalsveg, Eyjatún og Eyjavík (austurhlutann).
Hér má finna uppfærða stöðu á verkinu, frá 28. september sl.
og hér má sjá myndband: http://www.kjos.is/pages/video_temp/
af því þegar hitaveitu- og ljósleiðararör eru plægð í góðan jarðveg.
Þrjú tilboð bárust í byggingu aðstöðu- og dæluhús, auk borholuhúsa.
Lægsta tilboðið átti H-verk ehf, 17% yfir kostnaðaráætlun og var gengið frá samningi við það fyrirtæki í vikunni.
Næst lægsta tilboðið átti Möndull ehf - verkfræðistofa, 39 % yfir kostnaðaráætlun.
Hæsta tilboðið átti Nýbyggð ehf eða 118% yfir kostnaðaráætlun.
Búið er að taka grunna upp við Möðruvelli, á aðal athafnasvæði hitaveitunnar og byrjað að slá upp sökklum. Byggingarstjóri Kjósarveitna er Þeba Björt Karlsdóttir, rafvirkja- og símsmíðameistari.
Kjósin hefur skartað sínu fegursta þetta haustið og verktakar haft á orði að það séu forréttindi að vinna á svona fallegum stað.