Fara í efni

Skipulagsauglýsing_Flekkudalur

Deila frétt:

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi: Breyting á deiliskipulag Flekkudals

Tillagan felur í sér stækkun á skipulagssvæði um 2,6 ha. Fjórum nýjum frístundalóðum er bætt við sunnan við Vatnsbakkaveg, Vatnsbakkavegur 14-17. Lega Vatnsbakkavegar breytist með tilkomu nýrra lóða og aðkomu að lóðunum. Lega göngustíga breytist vegna breyttrar legu Vatnsbakkavegar. Einnig eru leiksvæði felld út vegna þessara breytinga.
Byggingarskilmálar breytast að því leiti að mænisstefna og þakhalli er frjáls innan lóða Vatnsbakkavegar 14-17 en gæta skal innbyrðis samræmis bygginga á skipulagssvæði. Að öðru leiti haldast skilmálar óbreyttir.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði, frá og með 24. september 2024 til 28. nóvember 2024 og er einnig til sýnis á heimasíðu Kjósarhrepps, www.kjos.is sem og í skipulagsgátt undir málsnúmerinu 1165/2024.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 28. nóvember 2024.

Skila skal athugasemdum í skipulagsgáttina undir málsnúmerinu 1165/2024.

Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps