Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps, haustúthlutun 2024
Samfélagsstyrkur Kjósarhrepps
Kjósarhreppur auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til samfélagsverkefna.
Allir einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um styrki vegna sérstakra viðburða eða verkefna í sveitarfélaginu, m.a vegna hátíða, hreinsunarátaka, nágrannavörslu, hvatningaverðlauna o.fl. Ekki er gert ráð fyrir að styrkir standi undir rekstrarkostnaði.
Leitast skal við að veita styrki til verkefna sem falla að hlutverki sveitarfélagsins eða teljast á annan hátt vera í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun.
Markmið styrksins er að styrkja og styðja einstaklinga, frjáls félagasamtök, stofnanir og hópa. Styrkjunum er ætlað að stuðla að frumkvæði og samheldni í samfélagsverkefnum og virkja þann samfélagsauð sem sveitafélagið býr yfir.
Skilafrestur umsókna er til og með 30. september 2024. Umsóknum skal skila á skrifstofu Kjósarhrepps eða á netfangið sveitarstjori@kjos.is
Sækja um styrk
Reglur um samfélagsstyrkinn er að finna hér.