Fara í efni

Pílagrímaganga frá Reynivallakirkju til Skálholts dagana 18.-21. júlí.

Deila frétt:
Reynivallakirkja
Reynivallakirkja

Pílagrímaganga frá Reynivallakirkju til Skálholts dagana 18.-21. júlí.

Sú ganga er merkt Ganga 2 af fjórum göngum sem eru skipulagðar í tengslum við Skálholtshátíð. Lagt verður af stað kl.9 frá Reynivallakirkju þann 18.júlí.
Skráning fer fram á heimasíðu Skálholts: www.skalholt.is 
Það er velkomið að ganga valda kafla eða daga. 

Ganga 2:

Gengið frá Reynivallakirkju að Þingvallakirkju 18. og 19. júlí.
Leiðin er um 33 km. sem skipt verður niður á tvo daga.
1.d. Fyrri daginn verður gengið um Kjósarskarðsveg að Þórufossi og að þingvallarafleggjara á Mosfellsheiði.
2.d. Gengið verður frá fyrr nefndum afleggjara að Þingvallakirkju. 

Þann 20. júlí verður gengið frá Þingvallakirkju þar sem hópurinn mun sameinast hópnum frá Bæ í Borgarfirði. Sjá göngu eitt.
Hægt að ganga valda kafla/daga.
Göngustjórar eru hjónin sr. Arna Grétarsdóttir og Rúnar Vilhjálmsson 

Nánar um Pílagrímagöngurnar.

Pílagrímagöngur eru hluti af hinum kristna menningararfi. Þeir sem ferðast til heilagra staða eru kallaðir pílagrímar. Þetta orð er komið úr miðaldalatínu (pelegrinus) en á rætur í klassískri latínu (peregrinus, útlendingur). Slíkar göngur eru farnar af misjöfnum ástæðum; í þakkargjörð, í yfirbótarskyni eða af trúarlegum og/eða menningarlegum áhuga. Gengið er í áföngum en hlé eru notuð til bænahalds, ritningarlesturs eða til íhugunar og kyrrðar.

Lengi hefur verið hefð fyrir því að ganga pílagríma göngur frá Þingvöllum til Skálholts á Skálholtshátíð sem er haldin árlega í kring um Þorláksmessu að sumri 20. júlí. Í ár verður gengið frá fjórum stöðum til Skálholts. Göngurnar eru mis langar en hverjum er frjálst að skrá sig aðeins í eina dagleið hverju sinni. Gengið verður frá Bæjarkirkju í Borgarfirði þriðjudaginn 16. Júlí og Reynivallakirkju 18. júlí.  Báðir hóparnir munu ganga til Þingvallakirkju og sameinast þar. Lagt verður af stað að morgni 20. júlí frá Þingvallakirkju í átt að Skálholti. Einnig verður gengið frá Bræðratungu í Biskupstungum til Skálholts og Ólafsvallakirkju á Skeiðum til Skálholts að morgni sunnadags þann 21. júlí. Frekari lýsingar á leiðunum má sjá neðar.

Boðið verður upp á svefnpokagistingu aðfaranótt sunnudags í Skálholtsbúðum fyrir alla gönguhópanna gegn vægu gjaldi. Þegar allir ferðalangar hafa skilað sér til Skálholts á laugardagskvöldið verða sungnar kvöldbænir og síðan verður pílagrímum boðið uppá sameiginlegan kvöldverð í Skálholtsskóla.

Á sunnudagsmorgun er í boði morgunverður niðri í búðum, sem hver og einn útbýr fyrir sig, hráefni verða til staðar s.s. brauð, álegga, súrmjólk, te og kaffi.

Boðið verður upp á akstur frá Apavatni laugardagskvöldi til Skálholts og frá Skálholti til Apavatns, Ólafsvallakirkju og Bræðratungukirkju á sunnudagsmorgni, ef þess er óskað.

Öllum göngum lýkur í Skálholti kl.14.00 þar sem gengið er til hátíðarguðsþjónustu í Skálholtsdómkirkju
Skráning í göngurnar fer fram inn á www.skalholt.is

Kostnaður:
Svefnpokagisting: kr. 3.700
Morgunverður: kr. 800
Akstur: fer eftir fjölda þátttakenda