Kjósarveitur, staðan og næsti áfangi
Búið er að hleypa á þær lagnir sem komnar eru í jörð og heitt vatn farið að nýtast 13 íbúðarhúsum, einu fyrirtæki og 32 frístundahúsum í Kjósinni.
Nú er ekkert því til fyrirstöðu að dusta rykið af píparanum og hafa síðan samband við
Kjartan hjá Kjósarveitum, GSM: 853-2112 til að fá endabúnað frá hitaveitunni eftir því sem við á, hemil eða mæli.
Athygli er vakin á því að frárennsli hitaveitu er á ábyrgð húseiganda og skal huga vel að því að frárennsli spilli ekki neysluvatnsbrunnum á viðkomandi svæði.
Næsti áfangi:
Vinna við hitaveitulegg nr. 2 hefst eftir páska. Það er leggurinn frá heitavatns holum, um Laxárdal, niður að Káraneskoti, Laxárnesi og frístundahúsum niður af Hálsendanum inn að Hvammsvík.
Verktakar áætla verktímann fyrir legg nr. 2 um 3 mánuði.
Rukkun á heimæðargjöldum fyrir þetta svæði er að fara af stað á næstu dögum með eindaga í lok maí. Sjá GJALDSKRÁ KJÓSARVEITNA
Þeir sem hafa áhuga á hitaveitu en hafa enn ekki sótt um geta fyllt út UMSÓKN og sent til baka á netfangið: kjosarveitur@kjos.is
Hitaveituleggur nr. 3 er frá heitavatns holum austur um Norðurnes, Vindáshlíð að Hækingsdal og Fremri Hálsi.
Hitaveituleggur nr. 4 og sá síðasti er seinni helmingur frístundahúsasvæðisins í Valshamri, um Miðdal, Morastaði og að Kiðafelli.
Vekjum athygli á hinum ýmsu tilboðum t.d. á heitum pottum, lista yfir pípara og nánari upplýsingar auk fræðsluefnis http://kjos.is/kjosarveitur-ehf/
Með hlýjum kveðjum og von um áframhaldandi góða samvinnu
Kjósarveitur - kjosarveitur@kjos.is - s: 56671-00
Sigríður Klara, framkvæmdastjóri - sigridur@kjos.is - GSM: 841-0013
Kjartan, rekstrarstjóri - kjartan@kjos.is - GSM: 853-2112