Heitt vatn farið að renna um Laxárdalinn
Nú er heitt vatn farið að renna um Laxárdalinn, verið er að skola út stofninn frá Hvassnesi að Ásgarði og leynir gufan sér ekki.
Næsti áfangi sem verður hleypt á er Ásgarður/Káraneskot/Laxárnes.
Loka áfanginn á þessum stofni er Bollastaðir/Baulubrekka og niður að Hvammi, stefnt er að hleypa á þann áfanga í lok ágúst. Eftir það verður haldið í austurátt með stofninn.
Vel er sigið á seinni hluta framkvæmdanna, sem hófust í maí 2016 og verður lokið 30.nóv 2017. Samhliða lögnum fyrir heitt vatn eru sett niður ídráttarrör fyrir ljósleiðara.
Nú í lok júlí var búið að taka inn heitt vatn í 27 íbúðarhús og 84 sumarhús. Sem er rétt helmingur þeirra húsa sem gætu verið komin með heitt vatn í dag, skortur á pípulagningarmönnum er aðal vandamálið hjá húseigendum.
Sjá uppfærða verkstöðu og áætlanir: http://www.kjos.is/kjosarveitur-ehf/verkstada-og-aaetlun/
Með hlýjum kveðjum,
Sigríður Klara Árnadóttir, sigridur@kjos.is
Kjartan Ólafsson, kjartan@kjos.is