Fréttir af skipulags- og byggingarsviði Kjósarhrepps
Töluvert hefur verið gert til að efla þjónustu við húseigendur í Kjósarhreppi á undanförnum mánuðum. Gerðir hafa verið samningar við tvær verkfræðistofur, annars vegar Feril sem leggur okkur til byggingarfulltrúa, Stefán Friðleifsson og hins vegar Landmótun sem leggur okkur til skipulagsfulltrúa Óskar Örn Gunnarsson. Olgeir Olgeirsson hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri á skipulags- og byggingarsviðs, hann sér um samskipti við þá sem á þjónustunni þurfa að halda og tekur á móti erindum.
Við höfum einnig verið að bæta þjónustu með aukinni notkun á rafrænni þjónustu. Með uppfærslu á tækjabúnaði Kjósarhrepps hefur sá áfangi náðst að nú eru aðaluppdrættir bygginga í Kjósarhreppi aðgengilegar á kortavef sveitarfélagsins. Vinnan hefur staðið yfir í nokkurn tíma, enda ekki lítið verk að skanna og skrá með leitarorðum þau 900 hús sem eru í sveitarfélaginu og stöðugt bætist við.
Fyrst í stað verða allar nýjar teikningar skannaðar inn eftir að Byggingarfulltrúi hefur samþykkt þær, þeir sem þurfa að skoða teikningar geta þá farið inn á kortavefinn hjá kjos.is í stað þess að sækja afrit uppdrátta í afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Ferlið er að samþykktir aðaluppdrættir eru skannaðir og settir inn í kerfið innan mánaðar frá afgreiðslu byggingarleyfisumsókna. Hver og einn eigandi húss getur óskað eftir því að grunnmyndateikning húss hans sé fjarlægð úr gagnagrunninum, en það heyrir til undantekninga að slíkar beiðnir berist. Slíkar umsóknir eða aðrar fyrirspurnir um teikningar skulu berast byggingarfulltrúa með netpósti á bygg@kjos.is.
Byggingarfulltrúi þarf nú einungis eitt afrit af endanlegum teikningum út prentuðum afhenta til úrvinnslu og skönnunar sem sparar kostnað húseigenda og dregur úr umhverfisáhrifum.