Fara í efni

Deiliskipulag frístundabyggðar Sandslundi

Deila frétt:

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi: Deiliskipulag Sandslundur 17, L215924

Deiliskipulagssvæðið nær yfir lóðina Sandslundur 17,  L215924. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 6 lóðum fyrir frístundahús. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Kjósarhrepps,  Ásgarði, frá og með 14. október 2024 til 25. nóvember 2024 og er einnig til sýnis á heimasíðu Kjósarhrepps, www.kjos.is sem og í skipulagsgátt undir málsnúmerinu 1220/2024. Sjá deiliskipulag hér.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 25. nóvember 2024.
Skila skal athugasemdum í skipulagsgáttina undir málsnúmerinu 1220/2024.

Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps