Fara í efni

Álagning fasteignagjalda 2022

Deila frétt:

Álagningu fasteignagjalda Kjósarhrepps fyrir árið 2022 er lokið.

Álagningarseðla fasteigna er hægt að  nálgast rafrænt á mínum síðum á vef Kjósarhrepps eða á vefnum www.island.is. Skrá þarf sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum. 

Fasteignagjöld skiptast á níu gjalddaga frá 1. mars til 1. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 30.000 er gjalddagi þeirra 1. mars.

Greiðslu má inna af hendi með greiðsluseðlum, í heimabanka og í bönkum. Jafnframt er hægt að greiða fasteignagjöldin með boðgreiðslum á greiðslukort. Nánari upplýsingar um skráningu á boðgreiðslum fer fram á skrifstofu Kjósarhrepps. Greiðsluseðlar eru almennt ekki sendir nema þess hafi verið óskað sérstaklega í tölvupósti kjos@kjos.is eða á skrifstofu sveitafélagsins í síma 5667100.

Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti                  

Lækkunin er reiknuð sjálfkrafa í samvinnu við Þjóðskrá Íslands og Ríkisskattstjóra og stuðst við síðasta skattframtal. Afslátturinn er færður til lækkunar á fasteignagjöldum á álagningarseðli.

Nánari upplýsingar um afslátt og álagninguna má finna hér.