Minnum á
21.03.2017
Deila frétt:
Að heldri íbúum í Kjósarhreppi er boðiðí Ásgarð á morgun, miðvikudag 22. mars kl. 15:00. Elva B. Pálsdóttir forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara og Vibeke Þ. Þorbjörnsdóttir deildarstjóri búsetu-/þjónustudeildar Mosfellsbæjar koma í heimsókn og kynna það góða starf sem þar er í boði og Kjósarhreppur er aðili að.
Einnig kemur hópur gítarnemenda úr Listaskóla Mosfellsbæjar í heimsókn og leikur fjölbreytta tónlist og leikur undir í fjöldasöng. Stjórnendur eru Símon Ívarsson og Ívar Símonarson.
Heitt á könnunni, bókasafnið opið og upplagt að skila bókum og ná sér í nýjar.