Kátt í Kjós 21. júlí
Kátt í Kjós hátíðin verður haldin hátíðleg að venju laugardaginn 21. júlí.
Eins og á síðasta ári eru íbúar hvattir til að skreyta póstkassana sína og flottasti kassinn verður valinn. Boðið verður upp á rúlluskreytingar og fleira.
Þeir sem hafa áhuga á að vera með sölubása í Félagsgarði eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við staðarhaldarann þar, Einar Tönsberg með gmailið: felagsg@gmail.com eða í gsm: 6595286.
Auglýsingabæklingur verður gerður og þeir sem vilja vera með í honum eru vinsamlegast beðnir að senda texta og myndir á netfangið gudny@kjos.is
Hugmyndir eru um að fá lánuð skemmtileg söfn, safnara og hafa til sýnis í Ásgarði og fleira.
Boðað er til fundar um verkefnið fimmtudagskvöldið í Ásgarð 28. júní kl 20:30. Allir velkomnir með góðar hugmyndir að viðburðum og/eða vilja vera með opið hús hjá sér og kynna sína starfssemi.