Fundur í Félagsgarði í Kvöld
24.05.2018
Deila frétt:
Frambjóðendur (10 af 181 sem eru á kjörskrá) munu standa fyrir kynningafundi í Félagsgarði í Kjós, næstkomandi fimmtudagskvöld, 24. maí, kl. 20:00. Kjósendur í hreppnum eru hvattir til að fjölmenna á fundinn til að ræða sveitarstjórnarmálin, kynnast frambjóðendum og þeirra áherslum.
Boðið verður upp á kaffi og sætindi.
Með bestu kveðjum, frambjóðendur í Kjósarhreppi.