Bráðahjálparnámskeiðið.
Námskeið verður í bráðahjálp miðvikudaginn 2. nóvember milli kl 16:00 og 18:00 í Ásgarði og fer þá fram leiðbeining um notkun hjartastuðtækjanna sem kvenfélagið afhenti sveitarfélaginu fyrr í mánuðnum
Heldri íbúum sveitarfélgsins eru sérstklega boðnir velkomnir. Kaffi, meðlæti og bókasafnið opið .
Bókasafnið: Mikið hefur dregist saman í útlánum bóka á bókasafninu. Af þeim ástæðum eru aðstandendur bókasafnsins hugsi yfir framtíð þess. Ekki þykir ástæða að vera með fasta opnunartíma eða kaupa bækur ef enginn hefur áhuga á að fá bækur að láni. Það væri gott að heyra frá þér íbúi góður hvort þú munir sækja bókasafnið í framtíðinni og gott væri að fá óskir frá þér um hvaða og hvernig bækur þú leggur til að bókasafnið kaupi.
Vinsamlegast látið vita til Svönu í gsm: 8629243 eða email middalur@emax.is