Kjósarhreppur - Myndir

 

Fréttir

16. maí 2012

Frá Kjósarstofu

Íbúafundur vegna hátíðanna Kátt í Kjós og Krásir í Kjós miðvikudagskvöldið  23. maí kl. 20 í Ásgarði.

 

Kjósarstofa boðar íbúa og aðra áhugasama til skrafs og ráðagerða um hátíðirnar Kátt í Kjós (sem verður 21. júlí) og Krásir í Kjós (sem verður 29. september) til fundar í Ásgarði miðvikudagskvöldið 23. maí kl. 20. Hátíðin Kátt í Kjós verður með fjölbreyttu sniði og óskum við eftir bæði hugmyndum og þátttöku sem flestra. Krásir í Kjós verða með svipuðu sniði og í fyrra og óskum við eftir samráði við þá sem hyggjast rækta grænmeti, kryddjurtir og fleira sem nýst gæti á matseðilinn, jafnframt því sem okkur langar að tryggja okkur bæði kjöt og fisk úr Kjósinni. Allir eru velkomnir og boðið verður upp á kaffi og meðlæti á fundinum.

 

 

Fjöruferð laugardaginn 26. maí kl. 15

 

Í tilefni af vorkomunni hyggst Kjósarstofa í samstarfi við umhverfisnefnd efna til fjöruferðar laugardaginn 26. maí. Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur verður með leiðsögn um fjörunytjar og rifjar upp þýðingu þangs, fjörudýra og fjörugróðurs í fæðunni og Björn Hjaltason á Kiðafelli verður með leiðsögn um fugla. Hist verður við skógræktarsvæðið við Fossá kl. 15. Að  lokinni fjöruferðinni verður boðið upp á kaffi og meðlæti í Ásgarðiog fagnað sumarafgreiðslutíma Kjósarstofu sem verður opin á laugardögum í júní og út ágúst kl. 14-18 auk þess sem opið verður á skrifstofutíma, kl. 10-16 á virkum dögum.

 

meira...

16. maí 2012

Frétt frá Adam

 

Starfsfólk á landsmótið o.fl.

Nú líður senn að landsmóti hestamanna í Reykjavík, en það verður haldið 25 júní til 1 júlí.  Mikið starfslið þarf til svo mótið gangi vel fyrir sig, og nú er um að gera fyrir hestamenn að vinna saman. LH sendi öllum hestamannafélögum á SV-horninu erindi, þar sem er óskað er eftir starfsfólki á vaktir. Eftirfarandi er kafli úr erindinu:

„Við gerum ráð fyrir að vaktirnar verði jafn margar og í fyrra. Við munum senda ykkur auglýsingu með nánari útskýringum til dreifingar seinni part þessarar viku . Norðlensku hestamannafélögin stóðu sig sérstaklega vel á síðasta móti hvað mönnun þessara vakta varðar og því er pressan í ár á félögin á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.

Eins og fyrr verða greiddar 1500kr per unna klukkustund og er það greitt til hestamannafélaganna í formi styrkjar. Landsmót leggur til og mælir með að öll upphæðin eða að lágmarki 1/3 hennar nýtist áfram í starfi hestamannafélaganna en renni ekki beint í vasa starfsmanna. Það má segja að ungmennafélagsandi sé aftur að aukast í okkar samfélagi, eins og sannaðist á síðasta móti, því ættu félagsmenn eftlaust að vilja taka þátt fjáröflun fyrir sitt félag.

 

Jafnframt viljum við, ótengt vöktunum sem voru ræddar hér að ofan, óska eftir aðstoð ykkar við að fá unglinga í félagsbúningum til þess að draga upp þjóðfána við setningarathöfn mótsins og jafnframt athuga með aðstoðarfólk í þjóðbúningum við verðlaunaafhendingar.“

 

Stjórn Adams hvetur þá félaga sem hafa tök á, að taka vaktir á landsmótinu og um leið efla okkar félag í Kjósinni. Þeir sem hafa áhuga á að vera með eru beðnir að senda póst á bjossi@icelandic-horses.is eða hafa samband í s. 8957745.

 

Þá viljum við minna á að Adam er á fésbókinni, en jafnframt sendir félagið út tilkynningar á kjos.is, hestafrettir.is og eidfaxa.is  .  Félagar geta líka sent tölvupóst á ofangreint netfang óski þeir eftir að fá tilkynningar sendar á netfang sitt.

Adamsfélagar; munið úrtökuna fyrir landsmótið 1-3 júní.

Stjórn Adams

meira...

14. maí 2012

Hreppsnefndarfundur 15. maí

Hreppsnefndarfundur verður þriðjudagkvöldið 15. maí kl 20.30 í Ásgarði.

Dagskrá fundarins má skoða undir: Stjórnsýslan-Hreppsnefnd-Fundir hreppsnefndar

meira...

8. maí 2012

Skattskrá 2011 og framlagningarskrá virðisaukaskatts 2010

Þessar skrár liggja frammi á skrifstofu hreppsins í Ásgarði frá 7. maí til 21. maí á skrifstofutíma. 

meira...

8. maí 2012

Ég lít í anda liðna tíð

Ragnheiður Finnsdóttir skólastjóri Klébergsskóla (1937-1945) ásamt nemendum sínum við Arnarhamar.

 

Fimmtudaginn 17. maí (Uppstigningardag) verður haldin myndasýning í Fólkvangi á Kjalarnesi á vegum Ljósmyndasafns Íslands Þjóðminjasafninu, Sögufélagsins Steina og Kjósarstofu. Um er að ræða áratuga gamlar myndir af Kjalarnesi og Kjós, sem fólk er beðið um að bera kennsl á. Einnig eru þeir sem eiga gamlar skemmtilegar myndir af Kjalarnesi beðnir um að lána þær Sögufélaginu til skönnunar sem gerð verður samdægurs.Kjósarstofa óskar einnig eftir myndum úr Kjós frá fyrri hluta síðustu aldar og fram til 1960 vegna ritunar sögu Kjósarhrepps.

Kvenfélagið Esja verður með kaffisölu og kökubasar.

Húsið er opið frá kl. 14-16.

Aðgangur ókeypis.

meira...

8. maí 2012

Störf hjá Kjósarhrepp í sumar.

Vinna fyrir námsmenn

Vinnumálastofnun hefur úthlutað til Kjósarhrepps þremur störfum fyrir námsmenn 18 ára og eldri nú í sumar í tvo mánuði.   Það er skilyrði að viðkomandi námsmaður hafi verið í námi sl vetur og sé skráður í nám hjá viðurkenndri menntastofnun næsta haust. Vinnutími verður frá kl. 09-16,  mánudaga-föstudaga.

Meðal verkefna er að koma Hreiðari heimska á tölvutækt form, hnitasetja rotrær og fl.

 

Unglingavinnan

Unglingavinnan fyrir aldurshópinn 14-16 ára verður starfrækt í sumar með hefðbundnum hætti. Hún mun hefjast 18. júní og verða næstu fimm vikur á eftir eða til 19. júlí. Mánudaga-fimmtudaga frá kl 10-16.

Helstu verkefnin verða: sláttur, hirðing og hreinsun í kringum Ásgarð og Félagsgarð. Rusl tínt meðfram vegum og strandlengjum og fl.

 

Umsóknareyðublöð má sækja hér fyrir námsmenn og  fyrir unglingavinnuna.  Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skila inn umsókn á skrifstofu Kjósarhrepps fyrir 26. maí 2012

 

meira...

2. maí 2012

Týndur: Rauður hestur

Auglýst er eftir dökk rauðum hesti með litla stjörnu. Rautt fax og rautt tagl

13 vetra taminn, önnur einkenni eru að hann er með mjög reist höfuðlag.

Hesturinn strauk úr hagabeit frá Þorláksstöðum Kjós,

Vinsamlegast tilkynnist til Bjarna á Þorláksstöðum.

eða Guðmundar 8966099

meira...

2. maí 2012

Hryssan fundin

Kráka frá Flekkudal sem búið var að leita að í tvö daga og fara víða fannst loksins í morgun og þá á hlaupum á Vesturlandsveginum á móts við sjoppuna á Kjalarnesi. Hún greinilega orðin þreytt á ferðalaginu og hoppaði fegin upp á kerru við Arnarhamar og er nú í öruggri vörslu eiganda síns.

meira...

1. maí 2012

Hryssa hefur tapast

Dökkgrá þriggja vetra hryssa hefur tapast frá Flekkudal og sást síðast til hennar á harða hlaupum við Tíðaskarð að morgni 30. apríl.  Þeir sem verða varir við hana eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Guðnýju í gsm 8997052

meira...

1. maí 2012

Hreppsnefndarfundur 3. maí kl 13 í Ásgarði

 Dagskrá fundarins má sjá undir: Stjórnsýslan-Hreppsnefnd-Fundir hreppsnefndar

meira...

28. apríl 2012

Bæjarkeppni – Firmakeppni Adams

Keppnin verður haldin við Félagsgarð, þriðjudaginn 1 maí, kl. 14. Keppt verður í a.m.k. tveimur flokkum, kvennaflokki og karlaflokki.  Knapar geta sýnt þær gangtegundir sem þeir kjósa, leitað er eftir „glæsilegasta parinu“.  Góð verðlaun í boði. Hvetjum alla til að mæta og vera með. Mæting ekki seinna en kl. 13:30 til skráningar.
Bændur,búalið og fyrirtæki í Kjós, við hvetjum ykkur til að taka þátt og styrkja okkur, svo við getum komið upp góðri aðstöðu fyrir hestasportið hér í sveit. Þátttöku má tilkynna með því að senda tölvupóst: á bjossi@icelandic-horses.is eða í síma 895-7745. Þátttökugjald aðeins kr. 5000 – og allir þátttakendur fá happadrættismiða í Stjörnuhappadrættinu!
Stjórn Adams.
 

meira...

26. apríl 2012

Kynning á aðal-og deiliskipulagsbreytingu í Kjósarhreppi

Kynningu á aðal- og deiliskipulagsbreytingu í landi Eyrar má skoða á heimasíðunni undir flipa Byggingarfulltrúa.

meira...

25. apríl 2012

Aðalfundur Kjósarstofu

Um 15 manns komu á aðalfund Kjósarstofu í Ásgarði þriðjudagskvöldið 24. apríl. Stjórnin var endurkjörin utan þess að Sólveig Dagmar Þórisdóttir varamaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Sigurbjörg Ólafsdóttir á Meðalfelli kosin í hennar stað. Rebekka Kristjánsdóttir og Þórarinn Jónsson voru endurkjörin skoðunarmenn. Opnuð var ný vefsíða Kjósarstofu, kjosarstofa.is. Í kjölfar fundarins var haldinn fundur með oddvita og framkvæmdastjóra Kjósarhrepps þar sem ákveðið var að Halla Lúthersdóttir tæki að sér hlutastarf fyrir Kjósarstofu meðfram starfi sínu fyrir Kjósarhrepp.

 

Kjósarhreppur sótti um eitt stöðugildi  hjá Vinnumálastofnun í verkefninu "Vinnandi vegur" fyrir starfsmann af atvinnuleysisskrá og réð í framhaldi Höllu Lúthersdóttur frá Þrándarstöðum, nú búsett á Eyri. Vinnan hennar er tímabundin fyrir Kjósarhrepp og  er verkefni hennar að flokka og skrá skjalasafn hreppsins  og koma því á tölvutækt form. Verið er að skoða þann möguleika að Kjósarhreppur fái leyfi til að varðveita sitt skjalasafn í heimabyggð.

meira...

25. apríl 2012

Firmakeppni- Bæjarkeppni Adams.

Hestamannafélag Kjósverja, Adam, heldur firmakeppni hinn 1. maí næst komandi. Ákveðið hefur verið að gera keppnina að einskonar bæjarkeppni.   Félagið stefnir að því að nota keppni þessa  til fjáröflunar, líkt og öll önnur hestamannafélög gera. Á næstunni eiga Kjósverjar von á heimsókn frá félögum í Adam, sem munu reyna að fá sem flesta til að taka þátt í þessari bæjarkeppni félagsins.

Þátttökugjald er kr. 5000, en inn í því er happadrættismiði  í Stjörnuhappadrætti félagsins að verðmæti 2500 kr.  Adam safnar nú peningum til að klára keppnisvöll, en aðstöðuleysi hamlar mjög starfsemi félagsins. Dregið er úr potti um það fyrir hvaða bæ hver keppandi keppir.

Við vonum að sem flestir bæir taki þátt og styðji þannig við verkefni okkar.

Stjórn Adams.

 

p.s. hópreið sem fyrirhuguð var þann 28 n.k. hefur verið frestað vegna slæms veðurútlits. Hópreið verður auglýst síðar, en stefnt er á að fara í maí.

 

meira...

25. apríl 2012

Kjósarrétt

Verktakafyrirtækið Tork er á síðustu metrum með að skila af sér verki við endurbyggingu Kjósarréttar.  Velunnarar Kjósarréttar hafa lagt fram vélar og vinnu við verkþætti sem felast ekki í verkefnum verktakans, þ. m. t. ýmsa jarðvinnu.   Nú styttist óðum í að vígja megi hina endurgerðu Kjósarrétt og stefna velunnnarar réttarinnar að því að gera það með pompi og prakt innan tíðar.  Um helgina komu þeir Óðinn á Klörustöðum, Siggi á Hrosshól, Siggi í Flekkudal og Guðmundur í Miðdal saman með traktora og sturtuvagna og keyrðu möl að réttinni.  Heimilisfólkið að Klörustöðum og Hlíðarási, Sigga Klara, Ellli, Þorgeir o.fl. lögðu einnig fram lið. Nú er í raun bara eftir lokahöndin, mála og snyrta aðeins betur.

meira...

18. apríl 2012

Stjörnuhappadrætti Adams

Drætti hefur verið frestað til 12 maí, í Stjörnuhappadrætti Adams. Þá hefur tollur undir hinn geysiefnilega Sæmund frá Vesturkoti komið í stað tolls undir hinn brottflutta Sædyn frá Múla. Sæmundur er bróðir heimsmeistarans Spuna, en báðir eru þeir undan Stelpu frá Meðalfelli í Kjós.

Við hvetjum Kjósverja til að styrkja hestamannafélag okkar Kjósverja, en allur ágóði fer í að klára keppnisvöll. Miða eru til sölu á skrifstofu hreppsins. Vinningshlutfallið einstakt, og reyndar mun betri kostur að kaupa happadrættismið en toll undir hest!

 

 

 

Meðfylgjandi er mynd af Aroni, en tollur undir hann er í fyrsta vinning.

 

 

 

Stjórn Adams

 

meira...

16. apríl 2012

Vel sótt sýning á Liljum vallarins

Á skírdagskvöld var kvikmynd Þorsteins Jónssonar Liljur vallarsins sýnd í Félagsgarði. Myndin er tekin í Kjósinni þar sem sköpunarverkið blómstrar – menn, dýr og náttúra. Hún fjallar um stórar spurningar – um Guð, tilgang lífsins og hvernig menn eiga að haga lífi sínu. Persónur í myndinni eru m.a. bændur í Kjósinni. Um 40 manns komu á kvikmyndasýninguna  og svöruðu Þorsteinn Jónsson og sr. Gunnar Kristjánsson svöruðu fyrirspurnum á eftir.

meira...

11. apríl 2012

Aðalfundur Kjósarstofu í Ásgarði þriðjudagskvöld 24. apríl kl 20

 

Boðað er til aðalfundar Kjósarstofu í Ásgarði þriðjudagskvöldið 24. apríl kl 20.

 

Dagskrá:

 

1.     Skýrsla stjórnar

2.     Ársreikningur

3.     Starfs- og fjárhagsáætlun 2012

4.     Kosning stjórnar

5.     Árgjald

6.     Breytingar á lögum félagsins

7.     Inntaka nýrra félaga

8.     Önnur mál

 

Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Allir velkomnir!

 

meira...

10. apríl 2012

Kynningarfundur á varmadælum og hitaveitumöguleikum

Íbúar hafa verið að koma með fyrirspurnir um hvort hreppsnefnd eða orkunefnd hafi gert eða látið gera hagkvæmniathuganir á uppsetningu/lagningu á varmadælum og  hitaveitu. Hver  væri munur í kostnaði og rekstri. 

Nú hefur verið ákveðið að boða til kynningarfundar í Félagsgarði þriðjudaginn 17. apríl kl 20.

 

Jón Sæmundsson frá Verkís mun vera með kynningu á varmadælum,  Sigþór Jóhannesson frá Verkís kynnir hitaveitumöguleika í sveitarfélaginu og síðan kynnir Gunnlaugur frá Verklagningu lagnamöguleika.

 

Síðan munu þeir svara fyrirspurnum fundarmanna.

 

meira...

3. apríl 2012

Frétt tekin af síðu MAST

Matvælastofnun barst þann 19. maí 2011 erindi frá ábúanda á Kúludalsá í Hvalfirði með ósk um rannsókn á veikindum hrossa á bænum með tilliti til mengandi efna frá útblæstri iðjuveranna á Grundartanga.

Matvælastofnun hefur nú í samvinnu við Tilraunastöðina á Keldum lokið þeirri rannsókn: 
 
1. Skoðun á hrossunum á Kúludalsá 22. ágúst 2011
2. Rannsóknir á líffærum þriggja hrossa frá Kúludalsá sem slátrað var á Hvammstanga 24. júní 2011:
    • Stórsæ skoðun á líffærum, þ.m.t. tönnum
    • Vefjaskoðun á líffærum
    • Röntgenskoðun á hófum og leggjum
    • Mælingar á flúor í beinvef (Nýsköpunarmiðstöð Íslands)
    • Mælingar á þungmálmunum blýi, kadmín og kvikasilfri í lifur (Matís)


Mynd tengist ekki frétt

Niðurstöður þessara rannsókna gefa engar vísbendingar um að hrossin hafi orðið fyrir eitrun af völdum flúors eða þungmálma.

Veikindi hrossanna má rekja til efnaskiptaröskunar (Equine Metabolic Syndrome) og krónískrar hófsperru af þeim sökum.

Efnaskiptaröskun í hrossum einkennist af fækkun á insúlínviðtökum í frumum líkamans sem veldur því að þær geta ekki nýtt sér glúkósa í blóðinu. Hún er að mörgu leyti sambærileg við sykursýki 2 í mönnum en fylgikvillarnir eru ólíkir. Hófsperra er mest áberandi og alvarlegasti fylgikvillinn hjá hrossum.


Hross sem hafa verið feit frá unga aldri og einkum þau sem safna fitu staðbundið í makka eru líklegust til að fá þessa röskun sem aftur eykur verulega hættuna á hófsperru. Hófsperra er sársaukafullur sjúkdómur sem með tímanum kemur niður á holdafari hrossanna. Fitan í makkanum situr þó eftir sem vitnisburður um offóðrun á fyrri stigum.

Erfitt er að lækna sjúkdóminn en eftir að hann hefur þróast verða hross sérlega viðkvæm fyrir auðleystum sykrum í fóðrinu. Það getur því þurft að taka þau af beit, a.m.k. tímabundið og beit ætti að einskorðast við útjörð. Mikilvægustu forvarnirnar felast í að hindra að hross verði akfeit (holdastig 4 eða meira) og að tryggja þeim næga hreyfingu.

Nánari upplýsingar um sjúkdóminn er að finna hér að neðan.

Ítarefni

   Upplýsingasíða um hófsperru

meira...