Kjósarhreppur - Myndir
6. febrúar 2012

Nýrri háspennulínu Landnets hf hafnað

Landsnet hf. hefur sent Hreppsnefnd Kjósarhrepps erindi þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi til að hægt verði að byggja 400 kv raforkulínu í gegnum hreppinn. Fyrirhuguð lína á að liggja frá Geithálsi að Grundartanga og lega hennar á að vera samsíða núverandi 220 kv. Ný fyrirhuguð lína er háð umhverfismati, er fyrirferðameiri og hefur meira helgunarsvæði en núverandi lína. Hún mun stóraukna flutningsgetu til að mæta aukinni eftirspurn eftir raforku til iðnaðaruppbyggingu á Grundartanga.

 

Hreppsnefnd Kjósarhrepps fjallaði um erindið á fundi þann 2. febrúar og gerði eftirfarandi samþykkt:

 

“Hreppsnefnd Kjósarhrepps hafnar alfarið hugmyndum Landnets hf. um stækkun og aukinnar flutningsgetu háspennulínu sem fer í um sveitarfélagið að Grundartanga í Hvalfirði. Hreppsnefnd er alfarið á móti aukni mengandi iðnaðaruppbyggingu í firðinum og telur að starfsemin á Grundartanga hafi þegar valdið íbúum og fasteignaeigendum í Kjósarhreppi ómældu tjóni og telur það algjört forgangsverkefni  að draga úr umhverfisáhrifum þegar starfandi iðnfyrirtækja á Grundartanga”.

 

Er þessi afgreiðsla í samræmi við inntak Aðalskipulags Kjósarhrepps en fram kemur í formála þess að ekki er gert ráð fyrir þéttbýli, stóriðju né uppbyggingu

háspennumastra. Þá er ræktun með tilstuðlan líftækni óheimil, jafnframt er stórfellt

fiskeldi og skipulagslaus uppdæling malarefna úr Hvalfirði hvoru tveggja forboðið.

 

 

Stjórnvald sjálfu sér samkvæmt
- 7.2.2012 11:27:52 Stefnan hefur verið mörkuð í aðalskipulagi. Engin ástæða er til að breyta því nema með víðtækri endurskoðun þar sem allir hagsmunir eru undir. Hreppsnefndi gerir rétt í að standa fast við þá stefnu, sem mótuð hefur verið og skjalfest.
Sigurbjörn Sveinsson
þessar byggingar þarna á Hvalfjarðarströndini eru búnar að eyðileggja nóg af þessum fallega firði þó að kjósin verði ekki eyðilögð lika
Til hamingju!
- 9.2.2012 01:07:34 Óskum Hreppsnefnd Kjósahrepps innilega til hamingju með ákvörðun sína um að hafna yfirgangi Landsnets um lagningu 400kV háspennulínu með tilheyrandi háum möstrum yfir land hreppsins. Stöndum saman og stoppum yfirganginn!
Landeigendur á Vatnsleysuströnd.